Spennan hefur verið að magnast á Sóla eins og hjá öllum Íslendingum fyrir fyrsta leik landsliðsins okkar. Skólinn okkar hefur nú verið skreyttur hátt og lágt, börnin hafa málað í glugga, búið til fána og kórónur, málað sig í framan og svo höfum við æft hin ýmsu hvatningshróp.