Innskráning í Karellen
news

Áræðnilotan að hefjast ❤️

27. 04. 2021

Áræðnilota er síðasta lota skólaársins og markmið hennar er sköpun.

Við vinnum með lotulyklana kjarkur, kraftur, virkni og frumkvæði. Hér reynir á áræðni, kjark og framkvæmdargleði og kjarkæfingarnar geta verið af ýmsum toga eins og dansa í stórum hóp, segja sögu í samveru eða líkamleg áreinsla eins og spila fótbolta eða hoppa niður af borði. Hér er fengist við leiðtogahæfni og æfa sig að þora að standa fyrir máli sínu. Frumkvæði er styrkt og við fjöllum um vitsmunalegan og verklegan möguleika þeirra til þess að hafa áhrif á umhverfi sitt, finna lausnir á vandamálum og vinna að nýjum hugmyndum.

Styrkja sjálfsmynd, æfa hreysti og styrk sem getur tekist á við hvað sem er. Frá óvirkni í gerendahlutverk.

Í áræðnilotu er lögð áhersla á mistakaótta og þá sérstaklega hjá stúlkunum okkar. Það er allt í lagi að gera mistök, það gengur bara betur næst. Okkur tekst ekkert nema reyna við það.

Þetta er skemmtileg lota þar sem það er aðeins hugmyndaflug kennarans sem stoppar okkur. Það er núna sem við brjótum upp hugmyndir af hefðbundinni hegðun, finnnum frumkraftinn okkar og notum hann. Hlaupum berfætt í grasinu og stökkvum ofan af matarborðinu. Æðislegt að fá að gera þetta með hækkandi sól sem aðeins eykur möguleikana á fjölbreytni hópatímanna.

Til að byrja áræðnilotuna með trukki ætla stóru hóparnir okkar að fara á Bárugötuna og dansa í tilefni sumarsins og alþjóðlega dansdagsis sem er í dag.

Annað árið í röð auglýsir fræðsluráð Vestmannaeyja eftir tilnefningum til Hvatningaverðlauna Vestmannaeyja. Við að sjálfsögðu hvetjum ykkur til að taka þátt :) Sjá meðfylgjandi auglýsingu:

hvatningarverðlaun 2021 auglýsing


© 2016 - Karellen