Innskráning í Karellen
news

Samskiptalota

30. 10. 2020

mánudaginn hefst þriðja lota í Kynjanámskránni okkar. Samskiptalota er miðstig félagsþjálfunar og í þessari lotu eru samvinnuverkefni efst á baugi. Þessi lota er eineltisáætlun okkar og því mjög mikilvæg lota. Við fjöllum um samskipti í sinni víðustu mynd og nemendum er kennt að virða landamæri hvors annars og standa saman um jákvæða hegðun og framkomu.

Í samskiptalotu er tilvalið að fjalla um fjölmenningu, fötlun og ólík sambúðarform. Rétta fram hjálparhönd og eins og elstu hóparnir eru að gera með jól í skókassa, en í dag fóru þau í Landakirkju og afhentu Gísla Stefánssyni æskulýðsfulltrúa og Viðari Stefánssyni presti 7 kassa. Við leggjum okkur fram við að finna verkefni sem ýta undir samstöðu og skapar hópstolt.

Jákvæð hugsun verður að ríkja hvað sem gengur á og við þurfum að hætta í blóraböggulshugsun. Við munum leggja okkur fram við að veita hverju einasta barni ómælda athygli, verum snögg að grípa inn í um leið og neikvætt orð heyrist og stoppum það af. Hættum að ásaka og spyrja hver gerði þetta. Notum frekar hvernig getum við lagað þetta og gengur betur næst. Það er okkur mikilvægt að heimilin taki þátt í þessu með okkur.

Hér eru nokkrir áherslupunktar:

  • Minnkum mistakaóttann
  • Minnkum sektarkenndina ef óhapp verður
  • Ræðum um stríðni og bögg
  • Huggaðu vin/vinkonu þinn/þína
  • Við erum vinir hér
  • Sköpum hópstolt
  • Hjálpum þeim sem minni eru
  • Haldast í hendur í morgunsamveru og sendum ljósið til þeirra sem eru veikir
  • Notum millimetralýðræði og kennum með því réttlætishugsun
  • Æfum hrósið

© 2016 - Karellen