Á síðasta fræðsluráðsfundi var tekin ákvörðun um sumarlokun leikskólanna í Vestmannaeyjum, en þeir verða lokaðir frá 12.-30. júlí og foreldrar/forráðamenn velji tvær vikur að auki þannig að sumarleyfi barns verður fimm vikur samfellt. Einnig var lagt til á fundinum að dagana 26.-29. júlí verði í boði heilsdagsgæsla á vegum bæjarins.
Skráningarform vegna sumarfrísins verður sent út mánudaginn 1.febrúar með rafrænum hætti á netfang foreldra. Foreldrar þurfa að vera búin að svara fyrir 18.febrúar.
Fyrir foreldra þeirra barna sem eru að klára skólagöngu sína hjá okkur í sumar og flytjast yfir á Víkina er gott að hafa í huga að þau byrja á Víkinni 16.ágúst.