Innskráning í Karellen
news

Sumarhátíð leikskólanna í Vestmannaeyjum 3.júlí 2018

05. 07. 2018

Árlega hittast öll leikskólabörn og kennarar þeirra í sameiginlegri sumarhátíð leikskólanna í Vestmannaeyjum. Að þessu sinnu sáu kennarar á Kirkjugerði um skipulagið og buðu til hátíðarinnar. Hópurinn hittist við Barnaskóla Vestmannaeyja og hélt þaðan í lögreglufylgd og trommuslætti að íþróttahúsinu. Þar söng hópurinn saman undir gítarleik og að lokum var Þjóðhátíðarlagið 2018 tekið. Því næst var frjáls leikur í stóra salnum í íþróttahúsinu og að lokum fengu allir popp í poka. Takk kærlega fyrir okkur kæru vinir og vinkonur á Kirkjugerði.

© 2016 - Karellen