Innskráning í Karellen
news

Föstudagsfrétt

18. 05. 2018

Komið þið sæl.

Þá er komið að því, fyrri stúlknahópurinn í Guðrúnar Lilju hópi kvaddi í dag. Við óskum Birnu, Bjarteyju Perlu, Bríeti Björk og Söru Rós alls góðs á Víkinni og þökkum þeim og foreldrum þeirra innilega fyrir yndislega tíma á Sóla og Grænakjarna. Maður fær alltaf smá í hjartað þegar börnin kveðja, en góðar óskir um að allt gangi þeim í haginn fylgja þeim héðan og við munum alltaf eiga smá í þeim. :-) Eftir helgina kemur hún Guðrún María af Hvíta kjarna til okkar með sínar stúlkur og fleiri eiga eftir að koma í aðlögun. Alltaf nóg að gera á Grænakjarna. Annars er löng helgi framundan og vonum við að allir eigi góða og gleðiríka daga.

Kærleikskveðjur; Marta, Guðrún Lilja, Margrét og Jóhanna Björk.

© 2016 - Karellen