Innskráning í Karellen
news

Föstudagsfréttir frá Grænakjarna

25. 05. 2018

Komið þið sæl.

Það er allt gott að frétta hjá okkur og ýmislegt í gangi. Guðrún Lilja er komin með stúlkurnar sínar þrjár inn á regnbogakjarna þar sem þær borða og eru í hópatíma með drengum af Gulakjarna. Guðrún María kom með tvær stúlkur með sér af Hvíta kjarna þær Anítu Björk og Glódísi Perlu og bjóðum við þær hjartanlega velkomnar á Grænakjarna. Eftir helgina byrja svo fjórar nýjar stúlkur í aðlögun hjá okkur. Mörtuhópur fer nú að fækka hádegshvíldartímanum og komum við til með að vera meira á útisvæði í hádeginu.

Eigið góða kostningahelgi kæru vinir, kærleikskveðja Marta, Guðrún Lilja, Margrét, Guðrún María og Jóhanna Björk.

© 2016 - Karellen