Innskráning í Karellen
news

Föstudagsfréttir

11. 10. 2019

Komið þið sæl.

það er bara allt mjög gott að frétta af Hvítakjarna, reyndar er einhver flensa í gangi en gengur vonandi fljótt yfir. Við erum duglegar að nota góða veðrið sem hefur verið þessa viku og höfum drifið okkur út á morgnana. Þau yngstu eru orðin dugleg að una sér í sandkassanum á meðan þau eldri sem eru orðin frá á fæti vafra um lóðina og skoða sig um.

Bestu kveðjur til ykkar, Marta, Auður, Júlía, Sólrún og Inga Birna.

© 2016 - Karellen