Innskráning í Karellen
news

Lubbi finnur málbein

12. 01. 2018

Í haust kom Eyrún Ísfold til okkar á Sóla og hélt námskeið um námsaðferðina Lubbi finnur málbein. Þar eru íslensku málhljóðin kynnt fyrir börnum í gegnum skemmtilegar sögur, myndir og söngva. Lubbi er íslenskur fjárhundur sem kann ekki íslensku málhljóðin og því þurfa börnin að aðstoða hann að læra að tala.

Námsefnið byggist á samþættingu sjón- heyrnar og hreyfiskyns. Hvert málhljóð á sitt tákn og brúar þannig bilið milli stafs og hljóðs. Vinnan með Lubba námsefnið leggur grunn að hljóðaaðferðinni sem er algengasta aðferðin sem notuð er hér á landi við lestrarkennslu. Börn læra að bókstafirnir tákna hljóð orðanna í talmálinu. Kostur aðferðarinnar er að börnin læra skilvirka tækni til að lesa stöðugt ný og ný orð sem koma fyrir í texta. Nánari upplýsingar um Lubba er að finna á lubbi.is.

Það er unnið með Lubba bæði á Víkinni og í Hamarskóla og því tilvalið að byrja undirbúninginn snemma. Við höfum verið að vinna með námsefnið í vetur en núna ætlum við að fá ykkur með í lið og hafa þetta sýnilegra þannig að það verður alltaf 1 hljóð vikunnar sem skólinn er að vinna markvisst með. Það mun vera á töflunni fyrir framan kjarnana. Í þessari viku er hljóðið Aa og á mánudaginn skiptum við og þá er hljóðið Mm.


© 2016 - Karellen