Innskráning í Karellen
news

Segull - Framtíðarsýn og áherslur í skólamálum Vm 2022-2026 ❤️

03. 01. 2024

Í dag fengu börnin á Sóla segul sem sýnir einfaldari útgáfu af Framtíðarsýn og áherslum í skólastarfi 2022-2026. Heildarútgáfu má sjá hér ásamt yfirlýsingu sem fulltrúar hagsmunaaðila undirrituðu þar sem þeir gerðu með sér samkomulag um að vinna ötullega að því að framtíðarsýn, áherslur og gildi yrðu höfð að leiðarljósi í öllu starfi skólanna í góðu samstarfið við foreldra og nemendur. Samstarf skóla og heimilis er lykilþáttur í því að þau markmið sem stefnt er að náist. Það er því von okkar að segullinn verði settur á góðan stað þar sem hann er sýnilegur foreldrum/forráðamönnum og börnunum svo hann minni okkur á framtíðarsýnina og þær áherslur og gildi sem í henni eru.

© 2016 - Karellen