Innskráning í Karellen
news

Föstudagsfréttir

06. 10. 2017

Kæru foreldrar, vikan hjá okkur á bláa kjarna hefur gengið mjög vel. Við höfum mikið verið að ræða haustið, skoða laufblöð og föndra haustmyndir. Fyrr í vikunni var haldið uppá afmæli Myrru Rúnar, hún varð 2 ára 1. okt. Stelpurnar í hópnum hennar Öddu bökuðu fyrir hana. Veðrið hefur verið gott í vikunni, útiveran var góð og elsti hópur nýtti veðrið vel og fór meðal annars í göngutúr á gæsló. Í dag var svo haldin söngfundur í stóra salnum og skemmtu allir sér vel.

Hlökkum til næstu viku og góða helgi.

Kær kveðja, Adda Dís, Stefanía, Sólrún og Þóranna.


© 2016 - Karellen