Innskráning í Karellen
news

Föstudagsfrétt af Grænakjarna

08. 06. 2018

Góðan dag. Það er nóg að gera á Grænakjarna þessa daga. Nú eru komnar fjórar nýjar stúlkur í hópinn hennar Guðrúnar Maríu, það eru þær Benedikta Sif, Hekla Rannveig, Lilja Rut og Rebekka Rós. Við bjóðum þær hjartanlega velkomnar. Nýju stúkurnar okkar eru að átta sig á hlutunum. Allt er svo stórt og framandi. En þær eru ótúlega duglegar og eiga eftir að verða flottar leikskólastúlkur. Marta verður í orlofi mán. þrið. og miðvikudag og verður Guðrún Kristín líklega með hópinn hennar á meðan. S.l. föstudag sungum við fyrir utan sjúkrahúsið og voru sjúklingar og starfsmenn ákaflega þakklátir fyrir sönginn. Kæru vinir, góða helgi; Marta, Guðrún Lilja, Margrét, Guðrún María og Jóhanna Björk.

© 2016 - Karellen