Innskráning í Karellen
news

Samskiptalota ❤️

01. 11. 2021

Í dag hófum við þriðju lotuna í Kynjanámskrá Hjallastefnunnar. Samskiptalota er miðstig félagsþjálfunar og í þessari lotu eru samvinnuverkefni efst á baugi. Þessi lota er eineltisáætlun okkar og því mjög mikilvæg lota. Við fjöllum um samskipti í sinni víðustu mynd og nemendum er kennt að virða landamæri hvors annars og standa saman um jákvæða hegðun og framkomu.

Í samskiptalotu er tilvalið að fjalla um fjölmenningu, fötlun og ólík sambúðarform. Rétta fram hjálparhönd eins og elstu hóparnir eru að gera með jól í skókassa. Við leggjum okkur fram við að finna verkefni sem ýta undir samstöðu og skapar hópstolt.

Jákvæð hugsun verður að ríkja hvað sem gengur á og við þurfum að hætta í blóraböggulshugsun. Við munum leggja okkur fram við að veita hverju einasta barni ómælda athygli, við ætlum að verum snögg að grípa inn í um leið og neikvætt orð heyrist og stoppum það af. Við ætlum að hætta að ásaka og spyrja hver gerði hvað. Við ætlum frekar að spyrja hvernig við getum lagað þetta og svo gengur betur næst. Það er okkur mikilvægt að heimilin taki þátt í þessu með okkur.

Hér eru nokkrir áherslupunktar:

  • Minnkum mistakaóttann
  • Minnkum sektarkenndina ef óhapp verður
  • Ræðum um stríðni og bögg
  • Huggaðu vin/vinkonu þinn/þína
  • Við erum vinir hér
  • Sköpum hópstolt
  • Hjálpum þeim sem minni eru
  • Haldast í hendur í morgunsamveru og sendum ljósið til þeirra sem eru veik/ir
  • Notum millimetralýðræði og kennum með því réttlætishugsun
  • Æfum hrósið

© 2016 - Karellen